



eilífu gangi hjarta þitt utan líkama þíns ???
Ég er lítill meyjustrákur
23. ágúst - 22. september
Allir vita að bangsinn getur ekki talað, en þó hefur hann huggað ótal börn.
Það er erfitt að segja nákvæmlega til um í hverju töfrar hans felast en sá sem hefur horft framan í bangsa getur borið um glettnislegan glampann í augum hans.
Bangsinn, lítill og loðinn, sendur af stað út í heim til að kenna fólki að faðmast.
Bangsar fá sér blund en þeir sofa aldrei í alvöru því þeir eru of önnum kafnir við að vernda börnin.
Bangsar þurfa ekki að vera nýjir eða fallegir - bara að vera til.
Bangsar svíkja mann aldrei.
Bangsi stendur alltaf með þér.
Bangsi er faðmlag með fjórar loppur.
Bangsar eru eins og yfirgefnir vinir sem bíða eftir að vera bjargað.
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,mömmu"
Hér er svo síðan hans pabba míns, hér eru fullt af myndum af þeim mömmu og vinum þeirra: